![]() |
![]() |
![]() |
|
|
"Konur á rauðum sokkum" vinna til verðlauna
( 9/06/2009)
Um síðustu hvítasunnuhelgi hlaut kvikmynd Höllu Kristínar Einarsdóttur „Konur á rauðum sokkum“ hin eftirsóttu áhorfendaverðlaun, Einarinn, á heimildamyndahátíðinni Skjaldborg á Patreksfirði.
Mynd Höllu Kristínar er hluti af söfnunarverkefninu „Minningar úr kvennabaráttunni 1965-1980“ sem Miðstöð munnlegrar sögu og Kvennasögusafn Íslands stóðu að. Fríða Rós Valdimarsdóttir mannfræðingur og Halla Kristín tóku viðtöl við 19 konur og voru þau notuð sem aðalefni myndarinnar, en hún segir sögu Rauðsokka og baráttu þeirra fyrir jafnstöðu karla og kvenna. Viðtölin eru geymd í safni Miðstöðvar munnlegrar sögu og verða almenningi til afnota þegar það verður opnað í haust.
|
|
| Miðstöð munnlegrar sögu - Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík - S: 525 5776 - netfang: munnlegsaga@munnlegsaga.is | ||