![]() |
![]() |
![]() |
|
|
Menningarnótt 2009
(21/10/2009)
Menningarnótt var haldin í Reykjavík í lok ágústmánaðar og var yfirskrift hátíðarinnar að þessu sinni "Húsin í borginni". Miðstöð munnlegrar sögu tók þátt í þessari hátíð í samvinnu við íbúa á hinum svokallaða timburhúsareit sem afmarkast af Grettisgötu, Laugavegi, Vitastíg og Frakkastíg. Var á fáeinum vikum safnað fjölda viðtala við fyrrverandi og núverandi íbúa hinna gömlu húsa og leitast við að fanga þann andblæ sem ríkti í gamla austurbænum á síðustu öld. Margt skrítið og skemmtilegt kom fram í þessum viðtölum og ýmsar upplýsingar um mannlífið sem aldrei hafa birst á prenti. Á menningarnótt var síðan opið hljóðver að Grettisgötu 35 þar sem gestir og gangandi gátu komið og rifjað upp minningar sínar úr gömlu húsunum í austurbænum. En um allt hverfið ómuðu raddir íbúa út um gáttir og glugga því hvarvetna var búið að koma fyrir spilurum sem vörpuðu þeim frásögnum sem áður hafði verið safnað út til þeirra sem leið áttu um hverfið. |
|
| Miðstöð munnlegrar sögu - Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík - S: 525 5776 - netfang: munnlegsaga@munnlegsaga.is | ||