![]() |
![]() |
![]() |
|
|
1. desember 2009
( 1/12/2009)
Miðstöð munnlegrar sögu opnar safn sitt fyrir almenningi þann 1. desember 2009. Athöfnin fer fram fer fram í fyrirlestrasal á 2. hæð Þjóðarbókhlöðu að viðstaddri Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra, Kristínu Ingólfsdóttur, rektor Háskóla Íslands, og öðrum gestum. Athöfnin er haldin sameiginlega með Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni sem fagnar 15 ára starfsafmæli í ár. Dagskrá: • Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir, landsbókavörður flytur ávarp • Guðmundur Jónsson, formaður stjórnar Miðstöðvar munnlegrar sögu, flytur ávarp • Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, opnar safn Miðstöðvarinnar • Brynhildur Sveinsdóttir, verkefnisstjóri, kynnir safn Miðstöðvarinnar • Rafræna gagnasafnið skemman.is kynnt |
|
| Miðstöð munnlegrar sögu - Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík - S: 525 5776 - netfang: munnlegsaga@munnlegsaga.is | ||