Þorgrímur Gestsson hefur að nýju hafið söfnun viðtala um verkalýðsbaráttu á 20. öld fyrir Alþýðusamband Íslands. Fyrirhugað er að safna rúmlega 20 viðtölum fyrir vorið og gera þau aðgengileg í safni Miðstöðvar munnlegrar sögu. Viðtölunum mun Þorgrímur safna víðsvegar um landið og nú þegar hafa miðstöðinni borist margar merkar frásagnir - bæði Íslendinga og fólks af erlendu bergi brotnu, sem segir frá lífi og starfi verkafólks á seinnihluta 20. aldar.

rvksogulogo.jpg
vefsyningar-ingeborg.jpg
vefsyningar-mikael.jpg
vefsyningar-kennsla.jpg