Miðstöð munnlegrar sögu opnaði í dag á heimasíðu sinni vefsýningu sem titluð er Borgarbörn. Á sýningunni er hægt að hlusta á frásagnir fólks á öllum aldri af æsku og uppvexti í Reykjavík. Hlýða má á...
Miðstöð munnlegrar sögu tók nýlega á móti veglegri gjöf frá Viðskipta- og iðnaðarráðuneytinu. Hér er um að ræða safn sjö viðtala sem Guðmundur Jónsson, prófessor í sagnfræði, tók vorið 1997....
Verkefnið Reykjavíkursögur hófst formlega á nýafstaðinni Vetrarhátíð dagana 23 og 24. febrúar. Reykjavíkursögur er nýstárlegt verkefni sem miðar að því að safna sögum af lífi fólks í Reykjavík á ólíkum...
Reykjavíkursögur Borgarbörn segja frá æsku sinni á Vetrarhátíð
Miðstöð munnlegrar sögu var formlega opnuð föstudaginn 26. janúar s.l. og var athöfnin vel sótt. Sigrún Klara Hannesdóttir, landsbókavörður bauð gesti velkomna og Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra opnaði heimasíðu Miðstöðvarinnar. Auk upplýsinga af ýmsu tagi getur á heimasíðunni að líta þrjár vefsýningar þar sem fjallað er um fyrsta flóttamanninn á Íslandi, stríðsárin í Danmörku út frá reynslu íslensk/danskrar fjölskyldu og sagt er frá íslenskri sveitakennslu um aldamótin 1900. Guðmundur Jónsson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands hélt tölu fyrir hönd Sagnfræðistofnunar og Dr. Lauri Harvilathi, forstöðumaður Folklore Archives, Finnish Literature Society í Helsinki, hélt hátíðarræðu.

<< <  Síða 6 af 8  > >>

rvksogulogo.jpg
vefsyningar-ingeborg.jpg
vefsyningar-mikael.jpg
vefsyningar-kennsla.jpg