Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Guðrún Lovísa Magnúsdóttir (1922 – ) og Trausti Friðbertsson (1917 – 2002). Viðtöl. MSS 2020/2.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður: Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Miðstöð munnlegrar sögu.

Safnmark: MMS 2020/2

Titill: Guðrún Lovísa Magnúsdóttir og Trausti Friðbertsson. Viðtöl.

Tímabil: 2000-2014

Umfang: Ein askja: 4 geisladiskar og 8 vélritaðar síður um Guðrún Lovísa Magnúsdóttir og gróf innihaldslýsing viðtals. Tvær síður um Trausta Friðbjörnsson ásamt ljósriti af diskahulstri þar sem fram koma efnisþættir viðtala (yfirskriftir).

Tilvitnun: Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Miðstöð munnlegrar sögu. MSS 2020/2. Guðrún Lovísa Magnúsdóttir og Trausti Friðbertsson. Viðtöl.

Samhengi

Nöfn skjalamyndara: Guðrún Lovísa Magnúsdóttir (18. desember 1922 – ). Trausti Friðbertsson (26. júlí 1917 – 3. apríl 2002).  

Lífshlaup og æviatriði:

Guðrún Lovísa bjó í Álfagerði í Vogum þar sem viðtalið fór fram. Hún eignaðist 12 börn og í viðtalinu kemur fram mikill fróðleikur um lífið í Vogum á 20. öld, ekki síst um barnamenningu þess tíma.

Trausti Friðbertsson fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð (minningargrein í Morgunblaðinu). Hann lauk prófi frá Samvinnuskólanum 1940 og starfað upp frá því við verslun og annan rekstur.

Varðveislusaga: Þorvaldur Örn Árnason falaðist eftir að Miðstöð munnlegrar sögu varðveitti þrjú viðtöl sem hann haði tekið og gengið frá á geisladiska. Ekki er vitað hvort eða hvernig Þorvaldur Örn tengist Guðrúnu Lovísu og Trausta.

Um afhendingu: Þorvaldur Örn Árnason (15. desember 1947 – ), kennari á eftirlaunum, afhenit Miðstöð munnlegrar sögu gögnin í mars 2020.

Innihald og uppbygging

Umfang og innihald:

Guðrún Lovísa var 92 ára þegar rætt var við hana 20. nóvember 2014 á heimili hennar í Álfagerði í Vogum. Viðstödd vour tvö af 12 börnum hennar, Halla Jóna og Helga. Viðtalið gefur innsýn í líf Guðrúnar Lovíus og mannlíf og tíðaranda í Vogum á 20. öld.

Viðtölin tvö við Tausta voru tekin á heimili hans í Reykjavík, 3. september 2000 og 4. mars 2001. Trausti rekur lífshlaup sitt, störf og áhugamál. Einnig tæpt á fjölskyldumálum.

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not: Gögnin eru opin.

Skilyrði er stjórna endurgerð: Um endurgerð gilda almenn lög um höfundarrétt.

Tungumál: Íslenska

Tengt efni

Tengt efni: Viðtalinu við Guðrúnu Lovísu er líka miðlað á SoundCloud (skoðað 16.4.2020).

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar:

Þorvaldur Örn hafði efnistekið viðtölin og klippt niður á geisladisk (í spor, tracks) og gefið hverju spori nafn sem vísar til innihalds. Viðtal við Guðrúnu Lovísu er á tveimur diskum, alls 20 skár, sem afritaðar voru og vistaðar saman í möppu með þeim titli sem gefinn var á geisladiski. Viðtöl við Trausta eru tvö og haldið saman sem slíkum (alls 28 skrár). Hverju spori gefið nafn líkt og í viðtali við Guðrúnu Lovísu.

Jón Hrólfur afritaði geisladiska og gekk frá skráningu í apríl og maí 2020.

Dagsetning lýsingar: 5. maí 2020.


Skjalaskrá

Guðrún Lovísa Magnúsdóttir (18. desember 1922 – ). Viðtal var tekið 20. nóvember 2014 á heimili Guðrúnar Lovísu í Álfagerði í Vogum að viðstöddum tveimur af 12 börnum hennar: Höllu Jónu og Helga. Með afhendingu fylgdi 8. bls. samantekt um Guðrúnu Lovísu og viðtalið. Lengd viðtals er 1:55:23:

  1. Frjálst í Vogum.aiff (4:36)
  2. Börnin og Björgvin.aiff (8:02)
  3. Fyrsti kossinn og kaffi í grautinn.aiff (6:17)
  4. Gifting og byrjun búskapar.aiff (5:20)
  5. Sumar og skólaganga barnanna.aiff (3:56)
  6. Fæðing Magneu og fjöldi í heimili.aiff (5:07)
  7. Dans og fjör í Lyngholti.aiff (7:31)
  8. Björgvin og synirnir byggja.aiff (2:43)
  9. Jólahald.aiff (6:21)
  10. Slátrun, hvalkjöt og pöntunarfélag.aiff (4:44)
  11. Rólur, prjónavél o.fl.aiff (3:38)
  12. Kamar í Brekku og bygging Lyngholts.aiff (4:19)
  13. Breytt jólahald og ömmurnar.aiff (4:23)
  14. Dagbækur Lúllu. Jólabókalestur barnanna.aiff (11:06)
  15. Útileikir og skátastarf. Lesið úr dagbók.aiff (7:18)
  16. Heimilisstörf, nágrannar og næturgestir.aiff (6:05)
  17. Áramótabrennur krakkanna í Vogum.aiff (3:49)
  18. Pólitík og að geta á sporið.aiff (8:37)
  19. Leikfangakassi Lúllu, tvinnakefli og dýrabein.aiff (5:49)
  20. Hátískuföt saumuð. Mjólkurbrúsi. Hópmynd.aiff (3:30)

Trausti Friðbertsson (26. júlí 1917 – 3. apríl 2002). Tvö viðtöl á sitt hvorum geisladiski. Fyrra viðtal tekin á heimili Trausta, Hraunbæ 105 í Reykjavík, 3. september 2000 (diskur 1, alls 1:06:26):

  1. Uppruni á Suðureyri, f. 26.6.1917.aiff (2:12)
  2. Ár í Selárdal í Súgandafirði 1925.aiff (2:20)
  3. Friðbert Friðbertsson, kennari.aiff (2:05)
  4. Búskaður Aðalgötu 21, Suðureyri.aiff (2:09)
  5. Barnaskólaárin fjögur.aiff (4:59)
  6. Beitningamaður fyrir fermingu.aiff (4:04)
  7. Ferming á Ísafirði 1930.aiff (3:08)
  8. Reitavinna og smölun.aiff (1:20)
  9. Eitt ár i Héraðsskólanum, Laugarvatni.aiff (5:58)
  10. Á sjó, og Samvinnuskóli 1939-1042.aiff (8:00)
  11. Magasár Mjólk og kvonfang.aiff (4:33)
  12. Ragnehiður Lára Sigurðardóttir.aiff (5:20)
  13. Kaupfélagsstjóri á Flateyri 1948.aiff (9:18)
  14. Bruni, nýbygging og slátrun.aiff (4:56)
  15. Nýtt verslunarhús reist 1956.aiff (4:14)
  16. Úterðarfyrirtækið Hjallanes 1955.aiff (1:43)

Seinna vital var tekið á sama stað og hið fyrra 4. mars 2001 (diskur 2, alls 58:27):

  1. Heimili Trausta á Flateyi.aiff (2:38)
  2. Verslun við togara, kol, svartolía o.fl.aiff (3:33)
  3. Byggðarlag, íbúar og félagslíf um 1960.aiff (3:26)
  4. Sjóslys – 2 bátar og 7 menn í nóv. 1964.aiff (6:56)
  5. Nýsmíði – Sóley ÍS-225 1966, útgerðin.aiff (8:21)
  6. Kaupfélagið 1956-1976, m.a. harðfiskur.aiff (3:21)
  7. Vinna og frí Trausta kaupfélagsstjóra.aiff (2:12)
  8. Til Reykjavíkur 1976. Gúmívinnustofan.aiff (5:39)
  9. Börn Trausta og Ragnheiðar Láru.aiff (2:32)
  10. Störfin á Flateyri og í Reykjavík.aiff (12:29)
  11. Ragnheiður Lára bráðkvödd 1984.aiff (3:38)
  12. Hrefna Þovaldsdóttir.aiff (3:38)