Lýsandi samantekt
Varðveislustaður: Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Miðstöð munnlegrar sögu.
Safnmark: MMS 2020/3
Titill: Haraldur V. Ólafsson og Jónas Jónasson. Samtal.
Tímabil: 1965
Umfang: Ein 7 tommu segulbandsspóla í öskju. Afrit í einni vaw-skrá (48:16)
Samhengi
Nöfn skjalamyndara: Haraldur V. Ólafsson (3. júní 1901 – 18. september 1984) og Jónas Jónasson (3. maí 1931 – 22. nóvember 2011).
Lífshlaup og æviatriði:
Haraldur V. Ólafsson var lengi forstjóri Fálkans sem framleiddi og seldi reiðhjól en var ennig brautriðjandi í hljóðritun og sölu hljómplatna á Íslandi. Sjá minningargreinar: Morgunblaðið 1. nóvember 1984, bls. 40 og 12. janúar 1985, bls. 30. Sjá einnig Ágrip af sögu Fálkans. Gefið út á aldarafmæli félagsins 2004.
Jónas Jónasson starfaði hjá Ríkisútvarpinu nær óslitið frá 17 ára aldri. Hann er e.t.v. þekktastur fyrir þátt sinn Kvöldgesti sem sendur var út á föstudagskvöldum í 30 ár. Sjá minningargreinar: Morgunblaðið 2. desember 2011, bls. 24 og 8. desember 2011, bls. 28.
Varðveislusaga: Ekki er vitað hvaðan, hvenær eða frá hverjum segulbandsspólan rataði til Öldu Music þar sem hún kom í ljós við skráning á eldra hljóðefni og þótti best komin hjá Miðstöð munnlegrar sögu.
Um afhendingu: Alda Music ræður yfir umtalsverðum hluta íslenskra hljóðrita frá fyrr tíð. Gerður var samningur 2019 um að hljðritasafn fyrirtækisins yrði til frambúðar værðveitt í Landsbókasafni. Við yfirferð og skráningu komu í ljós upptökur eins og þessi sem best þótti að verðveita í safni Miðstöðvar munnlegrar sögu.
Innihald og uppbygging
Umfang og innihald:
Á spóluhulstur er skrifað: „Viðtalsþáttur Haraldar V. Ólafssonar og Jónasar Jónassonar í þættinum Í vikulokin. Birt í útvarpinu í febrúarmánuði 1965.“ Samtalið snýst annars vegar um hljómplötuútgáfu og hins vegar um framleiðslu reiðhjóla hvort tveggja á vegum Fálkans:
- MMS 2020/3 Haraldur V. Ólafsson í Fálkanum og Jónas Jónasson – samtal.wav (48:16).
Um aðgengi og not
Um aðgengi og not: Aðgengi er ótakmarkað.
Skilyrði er stjórna endurgerð: Um endurgerð gilda almenn lög um höfundarrétt.
Tungumál: Íslenska.
Um lýsinguna
Athugasemdir skjalavarðar: Bjarki Sveinbjörnsson afritaði segulband í febrúar 2020. Jón Hrólfur hljóðlagaði, skráði og gekk frá efni í safn MMS í apríl og maí 2020.
Dagsetning lýsingar: 4. maí 2020.