Lýsandi samantekt
Varðveislustaður: Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Miðstöð munnlegrar sögu.
Safnmark: MMS 2020/5
Titill: Tvö erindi flutt á foreldrafundi í Laugarnesskóla 1954.
Tímabil: 1954
Umfang: Ein 7 tommu segulbandsspóla í öskju. Afrit í tveimur hljóðskrám alls 30:26.
Tilvitnun: Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Miðstöð munnlegrar sögu. MMS 2020/5. Fræðluskrifstofa Reykjavíkur. Tvö erindi flutt á foreldrafundi í Laugarnesskóla 1954.
Samhengi
Nöfn skjalamyndara: Fræðsluskrifstofa Reykjavíkur.
Varðveislusaga: Segulbandsspólan fannst með skólaminjum við tiltekt í geymslum Árbæjarsafni síðla árs 2019. Ekki er vitað hvaðan, hvenær eða frá hverjum spólan barst þangað. Frá Árbæjarsafni barst spólan með kvikmyndaefni til Kvikmyndasafns Íslands og þaðan til Hljóð- og myndsafns í desember 2019.
Um afhendingu: Gunnþóra Halldórsdóttir, verkefnastjóri hjá Kvikmyndasafni Íslands, afhenti Bjarka Sveinbjörnssyni, fagstjóra hjá Hljóð- og mynsafni Landsbókasafns, segulbandsspólur sem hún taldi ekki eiga heima hjá Kvikmyndasafni. Hljóð- og myndsafn vistaði efnið hjá Miðstöð munnlegrar sögu.
Innihald og uppbygging
Umfang og innihald:
Tvö erindi flutt á foreldrafundi í Laugarnesskóla 21. mars 1954:
- Aðbúð barna í Laugarnesskóla – Hjörtur Kristmundsson 21.3.1954.wav (9:17). Hjörtur nefnir umfjöllunarefni sitt í upphafi erindis; hann er nafngreindur í afkynningu.
- Skólabyggingar frá sjónarhóli kennara – Helgi Þorláksson 21.3.1954.wav (21:09). Í upphafa hljóðritunar er Helgi nefngreindur og umfjöllunarefni erindis tilgreint. Hljóðritun endar áður en Helgi lýkur máli sínu.
Um aðgengi og not
Um aðgengi og not: Aðgengi er ótakmarkað.
Skilyrði er stjórna endurgerð: Um endurgerð gilda almenn lög um höfundarrétt.
Tungumál: Íslenska.
Um lýsinguna
Athugasemdir skjalavarðar:
Spóla er ómerkt en aftan á spólukassa er skrifað: „Foreldrafundur í Laugarnesskóla 21/3 1954. Framsöguræður: Hjörtur Kristmundss. Helgi Þorláksson. – Umræður.“ Erindin tvö eru hljóðrituð en engar umræður. Nánari upplýsingar um efnið fengust með skimun við afritun. Til að auðvelda hlustun var upptökunni skipt við afritun í erindin tvö og hjóðskrárnar merktar samkvæmt því.
Bjarki Sveinbjörnsson afritaði segulband í febrúar 2020. Jón Hrólfur hljóðlagaði, skráði og gekk frá efni í safn MMS í apríl og maí 2020.
Dagsetning lýsingar: 5. maí 2020.