Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Munnlegt heimildasafn Sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands. Anna Klemensdóttir frá Laufási. Viðtöl. MMS 2010/2

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður: Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Miðstöð munnlegrar sögu

Safnmark: MMS 2010/2

Titill: Munnlegt heimildasafn Sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands. Anna Klemensdóttir frá Laufási. Viðtöl

Tímabil: 1975

Umfang: Tvær öskjur. Eina askja með samantektum, uppskriftum og pappírum tengdum viðtölum. Ein askja með snældum.

Tilvitnun: Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Miðstöð munnlegrar sögu. MMS 2010/2. Sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands. Anna Klemensdóttir frá Laufási. Viðtöl

Samhengi

Nöfn skjalamyndara: Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands. Helgi Skúli Kjartansson (f. 1949), sagnfræðingur.

Lífshlaup og æviatriði:

Helgi Skúli Kjartansson (f. 1949) er prófessor emeritus í sagnfræði við Háskóla Íslands. Hann lauk cand. mag. prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands 1976. Rannsóknasvið Helga spannar allt frá landnámi Íslands til vesturferða og sögu Íslands á 20. öld.

Heimild: Sögufélag. „Helgi Skúli Kjartansson.“ sogufelag.is, https://sogufelag.is/2020/03/06/helgi-skuli-kjartansson/. Sótt 22. maí 2020.

Varðveislusaga: Varðveislusaga fram að afhendingu er ekki þekkt.

Um afhendingu: Helgi Skúli Kjartansson afhenti Miðstöð munnlegrar sögu, Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni, 6. júlí 2010.

Innihald og uppbygging

Umfang og innihald: Tvær öskjur. Eina askja með samantektum, uppskriftum og pappírum tengdum viðtölum. Ein askja með fimm 60 min. snældum.

Grisjun: Ekkert hefur verið grisjað úr safninu eftir afhendingu

Viðbætur: Ekki er von á viðbótum

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not: Safnið er opið

Skilyrði er stjórna endurgerð: Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd

Tungumál: Íslenska

Tengt efni

Tengt efni: Munnlegt heimildasafn Sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands MMS 2007/1. Sjá einnig einkaskjalasafn Önnu Klemensdóttir í handritasafni (Lbs 2020/300).

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar:

Eva Kamilla Einarsdóttir skráði sumarið 2012. Rafræn skráning var gerð af JKÁ 24.07.2013.

Jón Hrólfur lagaði skráningu og merkt snælduhulstur og snældur safnmarki og aðfanganúmeri 2019-2020.

Dagsetning lýsingar: 26. maí 2020.


Skjalaskrá

Anna Klemensdóttur í Laufási. Þrjú viðtöl

Helgi Skúli Kjartansson afhenti 6. júlí 2010 fimm 60 mín. snældur með þremur viðtölum við Önnu Klemensdóttur í Laufási (1890–1987), samtals 4:41:46. Efnið er viðbót við MMS 2007/1. Sjá minningargreinar um Önnu: Morgunblaðið. 6. febrúar 1987, bls. 44. Tíminn. 6. febrúar 1987, bls. 15.

Viðtölin eru þrjú og í uppskrift sögð tekin í febrúar 1975. Nákvæmar dagsetningar má ráða af skráningu á snælduhulstur. Hvergi finnst skráð hvenær snældur voru afritaðar eða af hverjum. Tíu afritaðar hljóðskrár voru merktar 1. hluti til 10. hluti og allar skráðar hljóðritaðar 7. febrúar 1975 sem ekki er nákvæmt. Þessari merkingu var breytt og hljóðskrár merktar dagsetningu viðtals og viðtalshluta.

Uppskriftir viðtal liggja í öskju eitt. Samfella milli snælduhliða er ekki alveg greinileg og snælduhliðum því ekki skeytt saman (t.d. í viðtölin þrjú). Viðtölin skiptast sem hér segir á snældur og hljóðskrár:

1. viðtal:

  • MMS 1 (2010/2 ) Anna Klemensdóttir – viðtal 4.2.1975 (1/3).wav (29:14). Spóla 6 – hlið 1
  • MMS 1 (2010/2 ) Anna Klemensdóttir – viðtal 4.2.1975 (2/3).wav (29:59) Spóla 6 – hlið 2
  • MMS 1 (2010/2 ) Anna Klemensdóttir – viðtal 4.2.1975 (3/3).wav (29:04) Spóla 7 – hlið 1

2. viðtal:

  • MMS 1 (2010/2 ) Anna Klemensdóttir – viðtal 7.2.1975 (1/4).wav (30:09). Spóla 7 – hlið 2
  • MMS 1 (2010/2 ) Anna Klemensdóttir – viðtal 7.2.1975 (2/4).wav (30:09). Spóla 8 – hlið 1
  • MMS 1 (2010/2 ) Anna Klemensdóttir – viðtal 7.2.1975 (3/4).wav (30:05). Spóla 8 – hlið 2
  • MMS 1 (2010/2 ) Anna Klemensdóttir – viðtal 7.2.1975 (4/4).wav (23:03). Spóla 9 – hlið 1

3. viðtal:

  • MMS 1 (2010/2 ) Anna Klemensdóttir – viðtal 17.2.1975 (1/3).wav (29:49). Spóla 9 – hlið 2
  • MMS 1 (2010/2 ) Anna Klemensdóttir – viðtal 17.2.1975 (2/3).wav (29:46). Spóla 10 – hlið 1
  • MMS 1 (2010/2 ) Anna Klemensdóttir – viðtal 17.2.1975 (1/3).wav (20:24). Spóla 10 – hlið 2