Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Heiðrún Eva Konráðsdóttir (f. 1982). Flatey á Breiðafirði: Eyjabúskapur, verslun og samfélagið í eyjunni frá 1900 til 1940. MMS 2007/4

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður: Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Miðstöð munnlegrar sögu.

Safnmark: MMS 2007/4

Titill: Flatey á Breiðafirði: Eyjabúskapur, verslun og samfélagið í eyjunni frá 1900 til 1940

Tímabil: 1900–1940

Umfang: Stafræn gögn eingöngu. Viðtöl við sex einstaklinga. Fimm viðtöl í hljóðriti (þar af uppskrift af þremur). Eitt viðtal í uppskrift eingöngu.

Tilvitnun: Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Miðstöð munnlegrar sögu. MMS 2007/4. Flatey á Breiðafirði: Eyjabúskapur, verslun og samfélagið í eyjunni frá 1900 til 1940.

Samhengi

Nöfn skjalamyndara: Heiðrún Eva Konráðsdóttir (f. 1982), sagnfræðingur.

Varðveislusaga: Varðveislusaga fram að afhendingu er ekki þekkt.

Um afhendingu: Heiðrún Eva Konráðsdóttir (f. 1982) sagnfræðingur tók viðtölin í tengslum við nám sitt í sagnfræði og afhenti Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni, 20. mars 2007.

Innihald og uppbygging

Umfang og innihald: Viðtöl við sex einstaklinga. Fimm viðtöl í hljóðriti (þar af uppskrift af þremur). Eitt viðtal í uppskrift eingöngu.

Grisjun: Ekkert hefur verið grisjað úr safninu eftir afhendingu.

Viðbætur: Ekki er von á viðbótum. 

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not: Safnið er opið.

Skilyrði er stjórna endurgerð: Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd.

Tungumál: Íslenska

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar: Jón Hrólfur Sigurjónsson yfirfór og lagfærði skráningu.

Dagsetning lýsingar: 17. ágúst 2020


Skjalaskrá

Fimm viðtöl viðtöl við sex einstaklinga um gamla samfélagið í Flatey á Breðafirði. Viðmælendur upphaflega sjö en eitt viðtal er tilgreint glatað (sjá word-skjal 2007-4 Flatey á Breiðafirði – samantekt.docx). Viðmælendur eru hér listaðir í stafrófsröð:

  1. Birna Ögmundsdóttir (27.9.1929-4.4.2014). Dagsetning viðtals ekki í hljóðriti en 20.03.07 er skráð efst í uppskrift viðtals og túlkað sem dagsetning viðtals.
    2007-4 Birna Ögmundsdóttir(20.3.2007).wav (58:57)
  2. Gerður Gestsdóttir (f. 2.07.1921). Dagsetning viðtals ekki í hljóðriti en 02.04.07 er skráð efst í uppskrift viðtals og túlkað sem dagsetning viðtals.
    2007-4 Gerður Gestsdóttir.wav (1:00:47)
  3. Hallbjörn Bergmann (f. 2.11.1932) – uppskrift í möppu; hljóðskrá vantar. Efst í uppskrift er skráð 28.03.07 og túlkað sem dagsetning viðtals.
  4. Jón Bogason (9.4.1923-20.10.2009). Uppskrift ekki með gögnum. Dagsetning viðtals ekki tilgreind í upptöku.
    2007-4 Jón Bogason1.wav (1:09:28)
    2007-4 Jón Bogason2.wav (27:50)
  5. Jónína Bergmann (f. 17.12.1929). Viðtal er tilgreint glatað í upphaflegri skráningu.
  6. Sigurberg Bogason og Kristín Guðjónsdóttir. Engar upplýsingar eru skráðar um Sigurberg og Kristinu. Dagsetning viðtals er óþekkt.
    2007-4 Sigurberg Bogason og Kristin Guðjónsdóttir.wav (37:47)