Lýsandi samantekt
Varðveislustaður: Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Miðstöð munnlegrar sögu.
Safnmark: MMS 2007/3
Titill: Vélsmíði og atvinnulíf á Þingeyri við Dýrafjörð. Þrjú viðtöl
Tímabil: Fyrir og um aldamótin 1900 og fyrri hluti 20. aldar.
Umfang: Ein askja, tvær hljóðsnældur.
Tilvitnun: Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Miðstöð munnlegrar sögu. MMS 2007/3. Vélsmíði og atvinnulíf á Þingeyri við Dýrafjörð. Þrjú viðtöl.
Samhengi
Nöfn skjalamyndara:
Kristján Ottósson (f. 1937), formaður félags blikksmiða.
Stefán Jónsson (1923–1990), útvarpsmaður.
Lífshlaup og æviatriði:
Kristján Ottósson (f. 1937) var formaður félags blikksmiða og fyrsti formaður og síðan framkvæmdastjóri Lagnafélags Íslands.
Stefán Jónsson (1923–1990) var rithöfundur, alþingismaður og útvarpsmaður. Hann starfaði sem fréttamaður fyrir Ríkisútvarpið frá 1946 til 1965 og dagskrárgerðarmaður þar frá 1965 til 1973. Stefán var varaþingmaður fyrir Alþýðubandalagið frá 1971 til 1974 og alþingismaður Norðurlandskjördæmis eystra 1974 til 1983.
Hemild: Wikipedia, https://is.wikipedia.org/wiki/Stef%C3%A1n_J%C3%B3nsson_(1923-1990). Sótt 11. júní 2020.
Varðveislusaga: Sumarliði R. Ísleifsson (f. 1955) sagnfræðingur fékk þessar upptökur á Þingeyri hjá Matthíasi, syni Guðmundar Sigurðssonar sem rætt er við. Sumarliði studdist að nokkru við upptökurnar þegar hann skrifað bókina Eldur í afli. Málmiðnaður á Íslandi á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar (1987).
Um afhendingu: Sumarliði R. Ísleifsson (f. 1955) sagnfræðingur afhenti Miðstöð munnlegrar sögu upptökurnar 16. febrúar 2009.
Innihald og uppbygging
Umfang og innihald: Tvær hljóðsnældur. Hljóðskrár með viðtölum við fjóra einstaklinga (tvo saman í einu viðtali), alls 1:19:47.
Grisjun: Ekkert hefur verið grisjað úr safninu eftir afhendingu.
Viðbætur: Ekki er von á viðbótum.
Um aðgengi og not
Um aðgengi og not: Safnið er opið.
Skilyrði er stjórna endurgerð: Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd.
Tungumál: Íslenska
Um lýsinguna
Athugasemdir skjalavarðar:
Eva Kamilla Einarsdóttir skráði sumarið 2012
Jón Hrólfur Sigurjónsson yfirfór og bætti skráningu 2020
Dagsetning lýsingar: 12. júní 2020
Skjalaskrá
Askja 1/1:
- Stutt lýsing á afhentum gögnum (hálf A4 bls.)
- Samningur um afhendingu á gögnum til Miðstöðvar munnlegrar sögu
- Tvær 60 mín. snældur:
Snælda 1:
- Hlið 1: Rætt við Guðmund Breiðfjörð (1879–1975) blikksmið (31:15). Kristján Ottósson, formaður félags blikksmiða tekur viðtalið. Rætt um ætt, uppruna og nám Guðmundar; einnig um atvinnulíf á fyrri hluta 20. aldrar, einkum blikksmíði.
- Hlið 2: Rætt við Ásgeir Matthíasson (1904–1988) blikksmið (30:49). Kristján Ottósson tekur viðtalið á Háleitisbraut 56. Rætt um æsku Ásgeirs og uppvöxt, barnaskólanám, atvinnulíf og vélsmiði á fyrri hluta 20.aldar.
Snælda 2:
- Stefán Jónsson (1923–1990) útvarpsmaður ræðir við tvo Þingeyringa (17:42): Guðmund J. Sigurðsson (1884–1973) vélsmíðameistari og stofnandi vélsmiðju GJS – Sjá minningargreinar í Morgunblaðinu 29. desember 1973, bls. 22 og 4. janúar 1974, bls. 24 – og Sigurð Jóhannesson (1884–1972). Rætt um lúðuveiðar Ameríkana við Dýrafjörð (1884-1897) þegar menn frá Glouchester í Massaschussets héldu til á Þingeyri nokkra mánuði á ári. Ræðir meðal annars skemmtanalífið á þessum árum, skoðanir á Ameríkönunum, Hótel Niagara, danska kaupsýslumanninn N. C. Gram og uppbyggingu hans í bænum á þessum árum, „ástandið“ á Þingeyri og margt fleira. Um frásögnina má lesa í „Mannlíf og saga í Þingeyrar og Auðkúluhreppum hinum fornu 5“. Ritstjóri Hallgrímur Sveinsson. (Hrafnseyri 1998). Í upphafi nefnir Stefán Jónsson að Jón Sigbjörnsson (1921–1996) hafi verið með honum í viðtalinu; líklega sem tæknimaður.