Lýsandi samantekt
Varðveislustaður: Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Miðstöð munnlegrar sögu.
Safnmark: MMS 2020/1
Titill: Skjöl og mynd-upptökur tengdar RÖST – samtök um eflingu landbúnaðar og byggðar í landinu. Upptökur af fundum.
Tímabil: 1992
Umfang: Stafræn gögn: 5 video-skrár, alls um 9.5 klst., og 8 PDF-skjöl.
Tilvitnun: Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Miðstöð munnlegrar sögu. MSS 2020/1. RÖST – samtök um eflingu landbúnaðar og byggðar í landinu.
Samhengi
Nöfn skjalamyndara: RÖST – samtök um eflingu landbúnaðar og byggðar í landinu.
Lífshlaup og æviatriði:
RÖST var stofnað 17. apríl 1991 af hópi bænda eftir langa baráttu þeirra gegn lagasetningu um landbúnaðarmál sem þeir töldu brjóta stjórnarskrá. „Félagið er enn skráð þó starfsemi sé nú lítil eða engin.“ Þorsteinn Hallgrímur Gunnarsson, tölvupóstur til skrásetjara, 30. apríl, 2020.
Þorsteinn sendi MMS þrjá tengla í fjölmiðlaumfjöllun varðandi baráttumál RASTAR:
- Dagur, 30. apríl 1992, bls. 2. – Sagt frá væntanlegum stofnfundi Rastar að Hrafnagili í Eyjafirði 3. maí 1992.
- Dagur 5. maí 1992, bls. 2 – „Verulegir gallar á stjórn búvöruframleiðslunnar“ – Sigurður Líndal.
- Bændablaðið og landsbyggðin 3. tbl. 6. árg. 1992 – „Á haugana með álitsgerð sjömannanefndar.“
Varðveislusaga: Þorsteinn Hallgrímur Gunnarsson (16. janúar 1946 – ) færði MMS gögn félagsins til varðveislu. Hann var bóndi að Reykjum í Torfulækjarhreppi sem taldi á sér brotið og var í hópi bænda sem kom að stofnun félagsins og vann að málefnum þess.
Um afhendingu: Þorsteinn Hallgrímur Gunnarsson afhenti 24. janúar 2020.
Innihald og uppbygging
Umfang og innihald:
Upptökur af tveimur fundum félagsins RASTAR frá 1992. Á Greifanum á Akureyri og frá aðalfundi í Hrafnagili í Eyjafirði. Á fundunum kynnti Sigurður Líndal lagaprófessor (1930 – ) þá vinnu sem hann vann fyrir félagið og gefin var út sama ár í ritinu: Stjórnkerfi búvöruframleiðslunnar og stjórnskipan Íslands. Að auki fylgdu afhendingunni 6 skjöl varðandi málefni félagsins.
Við afhendingu las Þorsteinn Hallgrímur Gunnarsson inn á myndband lýsingu á eigin baráttu við stjórnvöld sem perónulegan vitnisbuð um baráttumál félagsins. Upptaka er ófrágengin.
Um aðgengi og not
Um aðgengi og not: Gögnin eru opin.
Skilyrði er stjórna endurgerð: Um endurgerð gilda almenn lög um höfundarrétt.
Tungumál: Íslenska
Tengt efni
Tengt efni: hhh
Um lýsinguna
Athugasemdir skjalavarðar: Jón Hrólfur gekk frá gögnum og skráði.
Dagsetning lýsingar: 11. maí 2020.
Skjalaskrá
Myndupptökur af fundum:
Kynningarfundur á Greifanum á Akureyri 1992 (3:34:22):
- MMS 2020-1 RÖST-Sigurður Líndal á Greifanum 1992-1.hluti (3:03:30)
- MMS 2020-1 RÖST-Sigurður Líndal á Greifanum 1992-2.hluti (30:52)
Aðalfundur í Hrafnagili í Eyjafirði 3. maí 1992 (5:42:22):
- MMS 2020-1 RÖST-Aðalfundur-Hrafnagil-3.5.1992-1.hluti (2:55:07)
- MMS 2020-1 RÖST-Aðalfundur-Hrafnagil-3.5.1992-1.hluti (2:47:15)
Eftir aðalfundastörf fór Sigurð Líndal lagaprófessor (1930 – ) yfir þá vinnu sem hann vann fyrir RÖST og félagið gaf út sama ár: Stjórnkerfi búvöruframleiðslunnar og stjórnskipan Íslands.
Skjöl varðandi starfsemi félagsins:
- MMS 2020-1 RÖST-Ávarp stjórnar sem fylgir greinargerð Sigurðar Líndal.
- MMS 2020-1 RÖST-Samþykktir félagsins.
- MMS 2020-1 Stjórnkerfi búvöruframleiðslunnar og stjórnskipan Íslands. Formáli – Sigurður Líndal.
- MMS 2020-1 Þorsteinn H. Gunnarsson – Hnjúkahlíðar mál. Texti sem Þorsteinn las inn á myndband og lýsir hans hlið á þeim málum sem RÖST stóð fyrir.
- MMS 2020-1 Þorsteinn H. Gunnarsson. Nafnspjald.
- MMS 2020-1 Þorsteinn H. Gunnarsson. Uppkast að framsetningu myndbands sem aldrei var gert en átti að lýsa hans hlið mála (Story-Board) – textinn sem ÞHG las inná myndband.
Lýsing Þorsteins:
Ófrágengið myndband með lýsingu Þorsteins H. Gunnarssonar á hans hlið á baráttumálum félagsins. Dóttir Þorsteins ætlar að koma vinnu við að ljúka myndbandinu.